Arfaslök mæting en toppæfing

Það voru aðeins þeir allra hörðustu sem sáu sér fært að mæta á þriðjudagsæfingu Lunch United.  Eftirfarandi kappar mættu: Ingimar, Davíð, Sæþór, Ingvar og Júlli.  Þessir menn halda uppi heiðrinum.

Ekki hægt að halda úti æfingum með fimm?
Bull og vitleysa.  Snillingarnir, eða hinir fimm fræknu eins og starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar kölluðu fimmmenningana, bera ráð undir rifi hverju og þar sem Davíð þykist vera rifbeinsbrotinn var auðvelt að ná í ráð undir hans rifi.  Spilað var 2 á 3, mörkin færð að punktalínu.  Þeir sem voru tveir máttu skora allsstaðar en hinir aðeins af þröngu svæði, c.a. tveggja meters teigur frá markinu.  Úr varð hin besta skemmtun, ótrúlegt en satt.

Aukaæfing fyrir lúsera
Eftir þessa þrekraun voru sumir þreyttari en aðrir enda þrír af fimm sem nenna ekkert að hlaupa.  Það varð því úr að þremenningarnir tóku aukaæfingu í að losa "jeppa" úr torfæru.  Ekki verður greint frá nafni eiganda "jeppans" sem festist en Sæþór er rosalega ánægður með nýja "jeppann" sinn.

Skammarkrókurinn
Þeir sem ekki sáu sér fært að mæta eru komnir í skammarkrókinn.  Örn hafði reyndar löglega afsökun en Arsenal undirbýr sig nú stíft fyrir leik í kvöld gegn AC Milan.  Aðrir eru í vondum málum.

Og eins og maðurinn sagði „Meira seinna“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband